Tilkynning

FRÉTTIR AF SLIPPTÖKU BALDURS

🚢 FRÉTTIR AF BALDURI – VERKINU MIÐAR VEL! 🔧

Vinna við Breiðafjarðarferjuna Baldur gengur vel í slippnum í Hafnarfirði. Meðal annars er verið að endurnýja stjórnbúnað, setja upp nýjar vatnsþéttar hurðir, skipta um rúður og sinna málningarvinnu. 🛠️🎨

Stefnt er að prufusiglingu 20. nóvember og ef allt gengur að óskum er vonast til að Baldur komi fljótlega aftur í áætlun á Breiðafirði. 🌊

⛴️ Sjöfn heldur áfram að sigla til og frá Flatey á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum meðan Baldur er í slippnum. Sjá má siglingaáætlun Sjafnar hér á vefnum undir ,,SIGLINGAÁÆTLUN"

Tilkynningar