Tilkynning

BALDUR LENGUR Í EYJUM & FLATEYJARSIGLINGAR

Tilkynning frá Ferjuleiðum ehf.

Vegagerðin hefur óskað eftir því að Breiðafjarðarferjan Baldur verði lengur í Vestmannaeyjum en upphaflega stóð til. Baldur mun sinna áætlunarferðum milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja þar til viðgerð á Herjólfi er lokið. Áætlað er að það verði um miðjan júlí.

Baldur er í eigu Vegagerðarinnar, sem getur, þegar aðstæður krefjast, ráðstafað skipinu til siglinga til og frá Vestmannaeyjum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda fyrir okkar farþega. Og um leið þakka fyrir skilninginn sem flestir hafa sýnt okkur á undanförnum dögum.

Haft verður samband við alla þá sem eiga bókað í ferðir með Baldri, á því tímabili sem um ræðir.

Farþegabáturinn Særún mun halda áfram að sjá um siglingar til og frá Flatey.

Siglingaáætlunin er sem hér segir:

ATHUGIÐ: Fyrri ferð föstudagsins 19. júní hefur verið felld niður vegna veðurspár.

Mánudagar
Brottför frá Stykkishólmi kl. 15:00
Brottför frá Flatey kl. 16:30
** Ferjan snýr strax til baka frá Flatey án sérstakrar viðdvalar.

Þriðjudagar
Brottför frá Stykkishólmi kl. 15:00
Brottför frá Flatey kl. 16:30
** Ferjan snýr strax til baka frá Flatey án sérstakrar viðdvalar.

Miðvikudagar
Brottför frá Stykkishólmi kl. 15:00
Brottför frá Flatey kl. 19:30
** Viðdvöl (stopp) í Flatey er í 3 klukkustundir og snúið er til baka að henni lokinni.

Fimmtudagar
Brottför frá Stykkishólmi kl. 15:00
Brottför frá Flatey kl. 16:30
** Ferjan snýr strax til baka frá Flatey án sérstakrar viðdvalar.

Föstudagar
Brottför frá Stykkishólmi kl. 08:00 & 15:00
Brottför frá Flatey kl. 09:30 & 16:30
** Ferjan snýr strax til baka frá Flatey án sérstakrar viðdvalar.

Laugardagar
Brottför frá Stykkishólmi kl. 15:00
Brottför frá Flatey kl. 16:30
** Ferjan snýr strax til baka frá flatey án sérstakrar viðdvalar.

Sunnudagar
Brottför frá Stykkishólmi kl. 08:00 & 15:00
Brottför frá Flatey kl. 09:30 & 16:30
** Ferjan snýr strax til baka frá Flatey án sérstakrar viðdvalar.

Nánari upplýsingar í síma 562-8000 og á tölvupóstfanginu ferja@ferja.is

Tilkynningar